Ríkisstjórnin fallin samkvæmt gallup

Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í dag er fjöldi þingmanna ríkisstjórnarflokkanna kominn niður í 29 þingmenn. Stjórnin er því fallin ef þetta yrðu úrslit kosninga.

Fylgi VG heldur áfram að hrapa og er komið niður í 10.7% og lækkar frá mánuði til mánuðar. VG fengi einungis 7 þingmenn kjörna miðað við mælingu Gallups, Framsókn fengi 6 menn og Sjálfstæðisflokkurinn næði að halda sínum 16 þingmönnum Alls 29. Stjórnarandstaðan fengi 34 þingmenn miðað við þjóðarpúls Gallups.

Stuðningur við ríkisstjórnina fer einnig minnkandi og er kominn niður fyrir helming í fyrsta sinn.