Ríkisstjórnin er enn á gelgjunni

Karl Ágúst Úlfsson var á að giska í hátíðarskapi þegar hann opnaði Helgina sína á Hringbraut á laugardagskvöld, en hann minnti áhorfendur sína á að jólin eru á næsta leiti og flestir farnir að velta því fyrir sér hvað þeir fái í jólagjöf.

\"Lögreglan í Reykjavík veit hvað verður í pakkanum hennar: Hún fær byssur,\" sagði kappinn og bætti við: \"Vá. Loksins fá íslenskar löggur að verða eins og stórar löggur í útlöndum. Þegar skammbyssur verða komnar í alla löggubíla verða íslenskir lögregluþjónar líka settir á frasanámskeið, því þeir þurfa skammlaust að geta sagt setningar eins og: „Hold it right there, you son of a bitch!“ og „Go ahead, make my day!“ ...\" og hér talaði okkar maður tungum.  

\"Og eins og við ræddum í síðustu viku,\" hélt hann áfram \"er ríkisstjórn og þingmenn að fá launahækkanir uppá hundruð þúsunda á mánuði og auk þess feitan tékka í jólabónus þar sem hækkanirnar eru afturvirkar. Þjóðin hélt áfram að samgleðjast sínu fólki í þessari viku,\" og þar með brast hann í söng:

ÉG KEMST Í HÁTÍÐASKAP

ÞÓ SJÁLFUR ÞURFI AÐ ÞOLA TAP

ER SÉ ÉG ÞINGMANNINN MINN

ÞIGGJA JÓLABÓNUSINN

\"Og þetta var vikan þegar okkur var greint frá því að ef til verkfalls kæmi hjá starfsfólki álversins í Straumsvík myndi eigandi þess, Rio Tinto, að öllum
líkindum loka verksmiðjunni fyrir fullt og allt,\" benti Úlfsson á og spurði: \"Fyrirgefiði, en má það? Er það ekki bara svipað og að loka þjóðkirkjunni? Eða svipað og að leggja niður Seðlabankann? Þetta er nú einu sinni eitt af því sem útlendingar dást hvað helst að okkur Íslendingum fyrir: Við trúum á álfa og við trúum á álver.\"

Hann var ekki hættur: \"Og í vikunni hélt fólk áfram að velta fyrir sér aðgerðaleysi og frestunaráráttu ríkisstjórnarinnar. Ég held að við verðum að sýna því fullan skilning að stjórnin skuli ekki koma neinu í verk. Rifjum það upp að þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum var það haft á orði að nú væru orðin kynslóðaskipti í íslenskum stjórnmálum. Og er það ekki einmitt málið: Ríkisstjórnin er enn á gelgjuskeiðinu. Og hvað gerist þegar maður er á gelgjunni? Jú, maður ætlar aldrei að komast á lappir á morgnana, manni finnst maður vera misskilinn og allir aðrir vera fávitar - og maður frestar alltaf öllu til morguns. „Æ, ég nenni ekki að vera að koma með eitthvað fokkings frumvarp núna. Ég er kominn í borð 57 í Minecraft!“ ...\" og þar höfum við það, takk fyrir.