Ríkisstjórnin biðst afsökunar

Yfirlýsing forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar vegna nýfallins sýknudóms Hæstaréttar Íslands í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu er eftirfarandi:

Nýfallinn sýknudómur Hæstaréttar Íslands í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu var ræddur á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Ríkisstjórnin fagnar málalyktum í einu umdeildasta sakamáli Íslandssögunnar. Ég beini orðum mínum til fyrrum sakborninga, aðstandenda þeirra og annarra sem átt hafa um sárt að binda vegna málsins. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á því ranglæti sem þið hafið mátt þola. Reykjavík, 28. september 2018.

Undir þetta skrifar svo Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.