Ríkisstjórnin bætir við sig fylgi

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur ekki mælst meiri í ríft ár að því er fram kemur í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og sagt var frá í fréttum RÚV í gærkvöld. Nærri 39 prósent þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana og er það heldur meira en sameiginlegt fylgi stjórnarflokkanna. 

 

Píratar mælast enn með mest fylgi stjórnmálaflokka í þjóðarpúlsinum, þó að flug þeirra lækki um tvö prósentustig.Tæp 33 prósent segjast myndu kjósa Pírata ef kosið yrði nú. Fylgi Framsóknarflokksins er tæpum tveimur prósentustigum hærra en í síðustu mælingu, 12 prósent segjast nú myndu greiða honum atkvæði sitt.

Eins og fram kemur í fyrrgreindri frétt RÚV breytist fylgi annarra flokka lítið. 25 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 11 prósent vinstri hreyfinguna - grænt framboð rúmlega 10 prósent Samfylkinguna og tæp fjögur prósent Bjarta framtíð. Fimm prósent segjast myndu kjósa aðra flokka en þá sem nú eiga menn á þingi. 12 prósent vilja ekki gefa upp neina afstöðu og níu prósent segjast myndu skila auðu.

Stuðningur við ríkisstjórnina er meiri en fyrir mánuði. Nærri 39 prósent þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana og er það heldur meira en sameiginlegt fylgi stjórnarflokkanna. Stuðningurinn sem mælist nú er sá mesti sem ríkisstjórnin hefur notið í rúmt ár.

Könnunin var gerð á netinu 28. október til 30. nóvember. 5.727 voru í úrtakinu og svöruðu 57,3 prósent þeirra.