Guðjón Skarphéðinsson var í fyrra sýknaður af aðild að Geirfinnsmálinu en greinargerð ríkisins var lögð fram Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna stefnu Guðjóns sem var þingfest í júní. Ríkið hafnar öllum kröfum og fer fram á Guðjón greiði málskostnað. Þá telur ríkislögmaður að önnur gögn, sem dæmi sérfræðiálit um falskar játningar hafi ekkert sönnunargildi í málinu. Fréttablaðið greinir frá.
Guðjón krefst 1,3 milljarða í bætur fyrir ólöglega frelsissviptingu sem og ranga dóma sakadóms Reykjavíkur og Hæstaréttar. Þá krefst hann einnig bóta vegna ólögmætra rannsóknaraðferða lögreglu og ákæruvalds. Þá segir einnig í stefnunni að vísað sé til ómannúðlegra meðferðar og brot gegn mannlegri reisn Guðjóns en hann krafðist bóta vegna eftirfarandi:
- Ólöglega handtöku,
- ólöglega símahlerun,
- ólöglega leit,
- ólöglega læknisrannsókn,
- pyndingar,
- ómannúðlega og vanvirðandi meðferð
- brot á rétti til réttlátrar málsmeðferðar,
- ranga áfellisdóma Sakadóms og Hæstaréttar,
- ólöglega afplánun,
- ólöglegt skilorð í fjögur ár,
- opinberar yfirlýsingar dómstóls og ráðherra um sekt,
- fjölmiðlaumfjöllun,
- brot gegn mannlegri reisn,
- brot á vernd æru og mannorðs,
- afleiðingar frelsissviptingar á andlega og líkamlega heilsu og
- brennimerkingu um sekt frá sakfellingu til sýknudóms 2018.
Á vef Fréttablaðsins kemur fram að ríkið hafni öllum kröfum og málatilbúnaði Guðjóns. Krafan sé meðal annars fyrnd og Guðjón sjálfur stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir bótakröfur sínar á. Þá vísar ríkislögmaður til málsatvika eins og þeim er lýst í dómi Hæstaréttar frá 1980 þegar Guðjón var sakfelldur. Ríkislögmaður telur þann dóm hafa sönnunargildi um málsatvik á þeim forsendum að sýknudómur Hæstaréttar frá því í fyrra fjalli ekkert um þau.
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns segir að með þessu framferði sé traðkað á mannréttindum Guðjóns og borgaranna sem vísaði bæði til stjórnarskrár landsins og Mannréttindasáttmála Evrópu um skýran rétt Guðjóns.
„Ríkisstjórnin ætlar sér að komast upp með dómsmorðin án nokkurra afleiðinga fyrir ríkið og af fullkomnu ábyrgðarleysi.“