Stjórnarmeirihlutinn hangir á bláþræði

 Núverandi ríkisstjórnarflokkar fengju einungis 32 þingmenn kjörna samkvæmt nýrri Gallup-skoðanakönnun sem tekin var frá 27. mars til 29. apríl.  Sjálfstæðisflokkur er með 25.3% fylgi sem er sama og í kosningunum sl. haust og fengi 16 Þingmenn kjörna eins og þá. Vinstri græn tapa fylgi, fengju 14.1% og 9 menn kjörna, tapaði 2 þingsætum. Og Framsókn fengi 9.6%, næði 7 þingmönnum en missti einn mann. Samkvæmt þessu væri stjórnarmeirihlutinn kominn niður í lágmark, einungis einn þingmann.

 

Samfylking er næst stærsti flokkurinn með 17.7%, bætir verulega við sig og fengi 12 þingmenn kjörna. Píratar fengju 11% og 7 þingmenn, Miðflokkurinn er með 7.9% og fengi 6 þingmenn, tapar þremur prósentustigum frá síðustu kosningum. Viðreisn er með 7.7%, fengi 6 þingmenn kjörna og bætir við sig 2 mönnum. Flokkur fólksins er með 4.2% og kæmi því ekki manni á þing.

 

Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka samkvæmt þessari Gallup-könnun.