Ríkisstjórnarflokkarnir tapa sjö þingmönnum og félli

Ríkisstjórnarflokkarnir tapa allir þingmönnum samkvæmt Gallup-könnun sem unnin var á þremur vikum í janúar. Vinstri græn hafa tapað þriðjungi fylgis síns frá kosningunum haustið 2017 og hafa misst 4 þingmenn. Framsókn hefur tapað 2 þingsætum frá kosningunum og Sjálfstæðisflokkur einu.

Miðað við þetta hefði ríkisstjórnin einungis 28 þingmenn á bak við sig og væri fallin.

Fleira athyglisvert kemur fram í þessari könnun:

1. Samfylkingin er að festast í stöðugu fylgi í kringum 20% sem ætti að skila flokknum 12-14 þingmönnum í stað 7 þingmanna sem hann fékk í kosningunum haustið 2017. 

2. Sjálfstæðisflokkurinn er enn stærstur með 23.4% og 15 þingmenn, tapar einum manni.

3. Píratar bæta við sig tveimur mönnum frá síðustu kosningum eins og Viðreisn gerir. 

4. Samfylkingin, Viðreisn og Píratar hafa samkvæmt könnuninni samtals 27 þingmenn en ríkisstjórnarflokkarnir væru samtals með 28 þingsæti.

5. Áhrif Klausturmálsins virðast vera dvínandi. Miðflokkurinn mælist með 6.5% fylgi og 5 þingmenn þrátt fyrir allt. Sú fylgisaukning sem mældist hjá Framsókn vegna málsins er að ganga til baka. Flokkurinn er kominn niður í 8.8% fylgi og tapar tveimur þingmönnum frá kosningunum. Annar þeirra er Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins.

6. Sósíalistaflokkur Íslands tekur mikið fylgi frá Flokki fólksins og kæmi 3 mönnum á þing en Flokkur fólksins fengi einungis 3.7% atkvæða og engan þingmann kjörinn.

Þessi nýja Gallup-könnun virðist vera staðfesting á þeirri þróun sem verið hefur frá miðju síðasta ári að ríkisstjórnin heldur ekki meirihluta sínum, einkum vegna veiktar og versnandi stöðu Vinstri grænna sem eru að festast í 10-11% fylgi og 7 þingmönnum.