Andlag orkupakkaumræðunnar er til tals í fyrsta Ritstjóraþætti haustsins sem er hluti fréttaþáttarins 21 á Hringbraut i kvöld, en þar ræða þeir Einar Karl Haraldsson og Þorsteinn Pálsson stjórnmálaástandið eftir samþykkt þriðja orkupakkans á Alþingi í gærdag.
Þeir eru sammála um að Miðflokksmenn muni halda áfram baráttu sinni gegn auknum yfirrráðum ESB á Íslandi - og opinbera með þeim hætti frekari hrakningar ríkisstjórnarflokkanna í utanríkismálum, en stór hluti kjósenda Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og VG sé farinn að átta sig á því að vera Íslands á innri markaði Evrópusambandsins, í krafti EES-samningsins, sé jafngildi þess að vera í sambandinu.
Storaukin heernaðarumsvif á Norðurslóðum verða líka til umræðu á breyttum tímum þegar Bandaríkin eru ekki sami bandamaður Íslands og áður var, ekki gangi að þeir tali og breyti þvert á hagsmuni Íslands í umhverfismálum og reki einangrunarstefnu í stað alþjóðasamvinnu á sama tíma og þeir vilji auka umsvif sín á Íslandi.
Ritstjórarnir hefja upp raust sina klukkan 21:00 á Hringbraut í kvöld.