Áætluð fjarvera starfsfólks vegna veikinda er tvöfalt meiri á opinberum vinnustöðum en á almennum vinnustöðum. Þetta er ein af niðurstöðum þróunarverkefnis á vegum Viðskiptaráðs Íslands.
Niðurstöðurnar byggja á skráningu veikindadaga yfir þriggja ára tímabil á 25 vinnustöðum með um 1.400 starfsmenn. Að mati ráðsins veldur mismunur af þessari stærðargráðu um 11 milljarða króna árlegum kostnaðarauka fyrir hið opinbera og því segir ráðið brýnt að kanna nánar ástæður hans.
"Fjöldi fjarverudaga á hvern starfsmann í úrtakinu var að meðaltali 20 dagar hjá hinu opinbera samanborið við 10 daga í einkageiranum árið 2014," segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði vegna þróunarverkefnisins: "Starfsmenn hins opinbera eru samkvæmt þessu frá vinnu í um einn mánuð á ári. Þá voru starfsmenn á opinberum vinnustöðum veikir rúmlega 5 sinnum yfir árið samanborið við rúmlega 3 sinnum á einkareknu vinnustöðunum og langtímafjarvera ríflega þrefalt algengari hjá hinu opinbera," segir þar enn fremur.
Ráðið segir að þessi mismunur í fjarvistum vegna veikinda valdi umtalsverðum kostnaðarauka fyrir hið opinbera. Heildarlaunaútgjöld ríkis og sveitarfélaga nemi 276 milljörðum króna árið 2014. Út frá því megi áætla að kostnaður vegna umframveikinda opinberra starfsmanna nemi um 11 milljörðum króna á ári. Þessi kostnaður valdi hærri sköttum eða minni gæðum opinberrar þjónustu en ella.