Ríkisskuldir og hægur vöxtur

Matsfyrirtækið Moody´s telur tilefni til að lækka lánshæfismat alþýðulýðveldsins Kína. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð kínverskra stjórnvalda sem telja ekkert renna stoðum undir staðhæfingar matsfyrirtækisins um aukningu skulda kínverska ríkisins og í hagkerfinu ásamt því að hagvöxtur í Kína sér afar hægur.

Moody´s býst við að ríkisskuldir hækki á næstu árum upp fyrir 40% af vergri þjóðarframleiðslu.  Fjármálaráðherra Kína Xiao Jie segir mat og útreikninga Moody´s byggja á röngum forsendum. Xiao Jie segir að Moody´s ýkji vandræði kínverska hagkerfisins  og vanmeti getur kínverskra stjórnvalda til að takast á við umbætur á innviðum Kína og á offramleiðslugetu landsins sem er umtalverð.

rtá

Nánar www.vb.is