Skattaeftirlit

Á árinu 2016 voru mörg spennandi og jafnframt krefjandi verkefni á borðum starfsmanna ríkisskattstjóra. Þetta kemur fram í aðfararorðum ríkisskattstjóra í ársskýrslu embættisins fyrir 2016.

Á árinu var skattaeftirlit eflt þar sem aukin áhersla var lögð á að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi en hún getur auk annars ógnað samkeppnisstöðu á mörgum sviðum.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið beitti sér fyrir því að ríkisskattstjóri fengi viðbótar fjárveitingu til að efla skammtímaeftirlit og í kjölfar þess var unt að ráða aukinn mannafla til asð sinna víðtækara eftirliti og gera það skilvirkara.   

Skattaeftirlit er óhjákvæmilegur þáttur í því að tryggja betri heimtur skatta og eðli málsins samkvæmt er lögð þung áhersla á að skattaeftirlit sé virkt og hafi varnaðaráhrif.

Til þess þarf þó að horfa að störf eftirlitsmanna eru leyst í kyrrþey í samræmi við þær meginreglur sem skattayfirvöld búa við. Það hefur í för með sér að aðgerðir skattayfirvalda til að tryggja skilvirk skattskil eru ekki daglegur viðburður í fréttum.

 

rtá