Ríkissjóð vantar peninga

Björn Valur Gíslason, varaformaður VG og fambjóðandi í þriðja sæti flokksins í Norðausturkjördæmi, og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, eru sammála um að nokkru muni um þá peninga sem þeir segja núverandi ríkisstjórn hafi afþakkað. Það er með því að framlengja ekki auðlegðarskattinn,  með lækkun veiðigjalda og fálæti í innheimtu gjalda af erlendu ferðafólki.

Þetta kom fram í Þjóðbraut í gærkvöld þar sem þeir töluðu um skatta og auðlindagjöld ásamt Páli Magnússyni, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

Páll Magnússon er annarrar skoðunar og benti á að einstaka útgerðir borgi ríflega til samfélagsins. Mörgu megi breyta og margt megi bæta með lagfæringu á því kerfi sem nú er við lýði.

Samræður þeirra má nálgast á heimasíðu Hringbrautar.