Ríkissáttasemjari og fyrrverandi dómsmálaráðherra meðal umsækjenda

Alls bárust 12 umsóknir um embætti skrifstofustjóra Alþingis. Á meðal umsækjenda eru Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari, Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrverandi dómsmálaráðherra og Kjartan Björgvinsson héraðsdómari.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Alþingi.

Forsætisnefnd Alþingis auglýsti hinn 20. apríl síðastliðinn embætti skrifstofustjóra Alþingis laust til umsóknar. Skipar nefndin í embættið til sex ára í senn. Umsóknarfrestur rann út 6. maí síðastliðinn. Helgi Bernódusson hefur sinnt starfinu síðan 2005 og lætur af störfum í ágúst á þessu ári.

Umsækjendurnir 12 eru:

Ásthildur Magnúsdóttir, kennari,

Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari,

Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður,

Hilmar Þórðarson, fv. sviðsstjóri rekstrarsviðs,

Inga Guðrún Birgisdóttir, mannauðsstjóri,

Ingvar Þór Sigurðsson, forstöðumaður,

Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari,

Kristian Guttesen, aðjunkt,

Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri,

Sandra Stojkovic Hinic, verkefnastjóri,

Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri,

Þórdís Sævarsdóttir, kennari.

Í tilkynningu Alþingis segir að forsætisnefnd hafi falið þremur úr sínum hóp að hafa umsjón með ráðningarferlinu fyrir hönd nefndarinnar. Undirnefndina skipa Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og varaforsetarnir Guðjón Brjánsson og Bryndís Haraldsdóttir.

Einnig var ákveðið að skipa þriggja manna hæfnisnefnd til að fara yfir umsóknir, meta hvaða umsækjendum verður boðið í viðtal, annast viðtöl, meta umsagnir og gera tillögu til undirnefndar forsætisnefndar um þá sem hún telur hæfasta til að gegna starfinu. Hæfnisnefndina skipa Þorsteinn Magnússon, varaskrifstofustjóri Alþingis, sem er formaður, Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Starfsmaður nefndarinnar er Heiðrún Pálsdóttir, ritari forseta Alþingis.

Þegar greinargerð hæfnisnefndar liggur fyrir mun undirnefnd forsætisnefndar taka lokaviðtal við þá einstaklinga sem hæfastir eru taldir til að gegna embættinu og gera tillögu til forsætisnefndar sem tekur ákvörðun um ráðningu skrifstofustjóra Alþingis.

Nýr skrifstofustjóri Alþingis tekur við embættinu 1. september næstkomandi.