Bryndís ríkissáttasemjari á bessastaði?

Stór hópur fólks vinnur nú í því að fá Bryndísi Hlöðversdóttur ríkissáttasemjara til að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands.

\"Við þurfum sáttasemjara á Bessastaði, vel menntaða manneskju sem þekkir vel innviði samfélagsins og leitar sátta en kveikir ekki elda. Hver er betur til þess fallin en Ríkissátasemjari?” spyr einn af stuðningsmönnum framboðsins en kýs nafnleynd.

Hringbraut hefur heimildir fyrir að góðar líkur séu á að Bryndís fari fram. \"Bryndís Hlöðversdóttir yrði glæsilegur fulltrúi Íslands á erlendri grundu. Hún er góð í tungumálum og víðsýn. Og ekki skiptir minna máli að hún er komin af íslensku alþýðufólki og er réttsýn,\" segir önnur rödd úr stuðningshópi Bryndísar.

Hópurinn á bak við Bryndísi nefnir að hún sé vel menntaður lögfræðingur með reynslu af störfum á Alþingi, fv. rektor við Háskólann á Bifröst, starfsmannastjóri Landspítalans og Ríkissáttasemjari auk þess sem Bryndís hefur setið í stjórn Landsvirkjunar. Hún er 56 ára gömul og kemur úr hópi níu systkina.

Hringbraut náði ekki tali af Bryndísi við vinnslu fréttarinnar.

Fyrr í dag tilkynnti Katrín Jakobsdóttir að hún myndi ekki bjóða sig fram til embættis forseta Íslands en hvatti um leið til þess að Íslendingar kysu konu til forseta.

Uppfært kl. 19.59: Bryndís hefur staðfest í samtali við fréttastofu Rúv að hún íhugi framboð af fullri alvöru vegna stuðnings úr ólíkum áttum. Hún muni taka endanlega ákvörðun fyrir páska.