Í ágúst á síðasta ári kærðu dýra-, náttúru- og umhverfisverndarsamtökin Jarðarvinir hvalveiðifyrirtækið Hval hf. fyrir meinta vanrækslu og brot á reglugerðum og lögum um hvalveiðar til ríkissaksóknara. Hann sendi málið áfram til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi. Lögreglan á Vesturlandi taldi brot ekki nægilega sönnuð eða nægja til saksóknar og hætti rannsókn í desember.
Í janúar á þessu ári kærðu Jarðarvinir þessa fyrstu niðurstöðu lögreglunnar á Vesturlandi til ríkissaksóknara. Samtökunum bárust nýverið afstöðuskjal ríkissaksóknara til kærunnar og hefur hann ákveðið að vísa einu atriði upphafskærunnar og einu nýju kæruatriði til lögreglunnar á Vesturlandi til frekari rannsóknar.
Í skjalinu frá ríkissaksóknara segir að felld hafi verið úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi um að hætta rannsókn á þeim hluta máls sem varðar meint brot á ákvæðum reglugerðar nr. 489/2009 um yfirbyggðan skurðarflöt og er lagt fyrir lögreglustjóra að taka þann hluta málsins til áframhaldandi rannsóknar. Meint brot á 5. grein leyfis Hvals hf. til veiði á langreyði árin 2014-2018, að því er varðar skil á dagbók skipstjóra til Fiskistofu, hefur sömuleiðis verið framsent lögreglustjóranum á Vesturlandi.
„Hér er auðvitað um sakamál að ræða,“ segir Ole Anton Bieltvedt, formaður Jarðarvina. „Við teljum ástæðu til að almenningur viti af þessum langvinnu og margvíslegu brotum Hvals hf. á reglugerðum og lögum og viljum vekja upp spurninguna um hvort það geti flokkast undir ábyrga og eðlilega stjórnunarhætti að veita rekstraraðila, sem vanrækir og misvirðir veiðiskilyrði, reglugerðir og lög, að því er virðist að vild, ný og ný veiðileyfi, eins og ekkert væri.“
Í tilkynningu frá Jarðarvinum er bent á nýlegar skoðanakannanir, kenndar við „Iceland Naturally,“ sem sýni að hvalveiðar Hvals hf. spilli eða lami um hálfan markaðinn fyrir íslenskar afurðir og framleiðsluvörur í Norður Ameríku, með alvarlegum efnahagslegum afleiðingum fyrir landsmenn.
„Verður að teljast líklegt, að skaðsemin af hvalveiðum sé svipuð í Evrópu og gildi líka og ekki síður um ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningunni.