Ríkisoddvitar esb staðfastir

Ríkisoddvitar tuttugu og sjö Evrópusambandsþjóða (ESB) hittust í gær á Brexit stefnumóti í Brussel í Belgíu.

Oddvitarnir eru sagðir harðbrjósta því þeir senda Bretum þau ótvíræðu skilaboð að engar Brexit viðræður fari fram fyrr en Bretar standi við fjárhagslegar skuldbindingar þeirra við ESB.

Oddvitarnir láta ekki staðar numið við þessa kröfu. Gengið skal frá samkomulagi um opin ESB landamæri á milli írska Lýðveldsins og Norður-Írlands.

Þyngst vegur þó skilyrðislaus krafa ríkisoddvitana að ekkert sé til umræðu fyrr en Bretar tryggja að gagnkvæmur félagslegur réttur allra borgara ESB á Stóra-Bretlandi sé tryggur.

Hér átt við frjálsa för launafólks en löggjöf og stefnumið ESB mæla fyrir um rétt ESB borgara til að vinna í aðildarríkjum ESB.  Launþegar frá öðrum ESB ríkjum eiga að njóta sömu kjara og réttinda á Stóra-Bretlandi og heimamenn.

Þetta á við jafnt um vinnuskilyrði og félagsleg réttindi sem og skattalega meðferð.  Bretum er þetta þyrnir í augum en ESB relgur eru skýrar um að öll félagsleg réttindi og almannatryggingar einstaklinga og fjölskyldna þeirra sem flytjast á milli ESB ríkja.  

Ríkisoddvitar ESB eru ekki harðbrjósta heldur staðfastir segja fréttaskýrendur. 

Vísbendingar eru um að minni stuðningur sé nú við Brexit útgönguáformin en áður. Þinkosningarnar eru hinn 8.júní nk. en úrslit þeirra ráða framhaldinu.

 

 

 

Nánar www.bbc.com     www.independent.co.uk   www.theguardian.com