Niðurfelling í aserta-málinu leit illa út fyrir embættið

Í febrúar 2011 fór fram fundur í Innanríkisráðuneytinu þar sem Haraldur Jóhannessen Ríkislögreglustjóri sat
ásamt þeim Hreiðari Eiríkssyni, þáverandi forstöðumanni rannsókna hjá Seðlabankanum, Valtý Sigurðssyni,

þáverandi Ríkissaksóknara og fleiri fulltrúum.  Efni fundarins var slæmt ástand innan efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra (nú Héraðssaksóknara)

og takmörkuð geta embættisins til að sinna fjölgun mála – m.a. vegna fjölgunar mála vegna meintra brota á gjaldeyrisreglum Seðlabankans.

Á fundinum lýsti fulltrúi Seðlabankans því yfir að hann teldi að þau mál sem Seðlabankinn hefði kært stæðu á afar hæpnum grunni.

Lagði hann m.a. til að Aserta-málið svokallaða sem Seðlabankinn hafði kært rúmu ári áður yrði fellt niður.  Að sögn eins viðmælenda í þættinum

Atvinnulífið lagðist Haraldur Jóhannessen, Ríkislögreglustjóri alfarið gegn slíku þar sem niðurfelling málsins myndi líta illa út fyrir embættið.  

Eins og margir muna blés embætti Ríkislögreglustjóra fast í lúðra þegar rannsókn málsins hófst í janúar 2010

og stóð embættið m.a. fyrir fáheyrðum blaðamannafundi þar sem sakborningar voru nafngreindir og sakarefni málsins var

kynnt fjölmiðlum í kjölfar handtaka og húsleita.  Nánar verður greint frá þessu í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar

kl. 20.30. í kvöld.  Umsjón hefur Sigurður K. Kolbeinsson og kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.