Ríkislögreglustjóri mætti á fund ráðherra - vonar að friður skapist um störf lögreglunnar

Fundur Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra og Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra var að ljúka rétt í þessu. Að sögn Haraldar átti hann sjálfur frumkvæði að fundinum og vildi ekki tjá sig við sérstaklega um efni fundarins.
 
„Já. Ég óskaði eftir því eins og ég hef alltaf gert þegar kemur nýr ráðherra að fara yfir lögreglumálin,“ segir Haraldur. „Aðalatriðið og kjarni málsins er sá að það skapist friður um störf lögreglunnar og lögreglan tali saman innan lögreglunnar en ekki opinberlega eins og verið hefur um langt skeið,“ sagði Haraldur.
 
Morgunblaðið birti viðtal við Harald nú um helgina og hafa margir harðlega gagnrýnt Harald vegna þess. Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sagði meðal annars að það þyrfti að skoða málefni Haraldar eftir viðtalið. 
 
„Það þarf að skoða um hvað hann er að tala þegar hann segir að spilling þrífist innan lögreglunnar og hann ætli ekki að segja frá því nema að hann verði fyrir einhvers konar afleiðingum. Mér finnst það lykta af einhvers konar samtryggingarfíling að „ég skal ekki segja frá nema að ég fái að halda minni stöðu,“ sagði Sunna.
 
Haraldur var spurður af blaðamönnum hvort hann ætli sér að stíga til hliðar úr starfi ríkislögreglustjóra til að skapa frið innan lögreglunnar, en Haraldur svaraðu engu um það.