Bókin Dýrbítar eftir Óskar Magnússon er sjálfstætt framhald bókarinnar Verjandinn. Í Verjandanum tóku aðdáendur Óskars eftir því að lögmaðurinn Valur Classen hrl átti sér fyrirmynd í Erni Clausen heitnum. Þá hafa lesendur Dýrbíta tekið eftir því að ríkislögreglustjórinn í sögunni fær háðulega útreið frá Óskari.
Eiríkur Jónsson greinir frá því að ríkislögreglustjórinn í bók Óskars heiti Samúel Johnson. Í sögunni ræður hann illa við starf sitt og hefur hann meiri áhuga á einkennisbúningum og bílum en draumur hans er þó að verða ljóðskáld þrátt fyrir að vera ekki sérlega góður í því að yrkja. Í bókinni yrkir Ríkislögreglustjórinn þetta ljóð:
Skarfarnir brýndu goggana
Á klettinum við landsteinana
Og biðu þess að komast um borð
Í rúturnar
rotturnar með löngu halana.