Ríkislögreglustjóri bregst við „klaufalegu orðavali“ lögregluþjóns

Orðalag starfsmanns í fjarskiptamiðstöð lögreglu „endurspeglar ekki viðhorf viðkomandi starfsmanns né lögreglunnar í heild til skjólstæðinga hennar.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra þar sem brugðist er við fjölmiðlaumfjöllun um mál Sólveigar Johnsen.

Á þriðjudag greindi hún frá því að hún hafi hringt í neyðarlínuna vegna meðvitundalítils samborgara á Barónsstíg. Eftir að hafa lýst aðstæðum fyrir lögreglu kom það henni mjög í opna skjöldu þegar hún var spurð hvort maðurinn virtist vera skattgreiðandi.

„Eftir skoðun kom í ljós að samskipti starfsmannsins hefðu mátt vera betri og á því hefur verið tekið,“ segir í tilkynningu frá embættinu..

Málið hafi verið rætt við Sólveigu og hún upplýst um málsmeðferðina.

Sjá einnig: Var í áfalli eftir viðbrögð lögreglu: „Sýnist þér hann vera skattgreiðandi?“

„Starfsmaðurinn segir sjálfur að um klaufalegt orðaval hafi verið að ræða þegar hann hafi verið að reyna að átta sig á stöðunni sem hafi alls ekki verið illa meint. Hann áttaði sig á mistökum sínum og gekkst að fullu við þeim.“

Þá er tekið fram að ekki sé um að ræða viðtekið orðfæri innan lögreglunnar.

„Embætti Ríkislögreglustjóra ítrekar að allir sem leiti til lögreglu eigi rétt á sömu þjónustu og virðingu.”