Gissur Pétursson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að kjararáð eiga að ljúka þeim málum sem enn eru á borði ráðsins áður en það verður lagt niður. Gissur segir að síðasta launahækkun ríkisforstjóra hafi verið fyrir þremur árum en forstjórarnir heyra undir ráðið.
Gissur segir að það sé með ólíkindum hvernig stjórnvöld hagi sér og að fjölmörg önnur mál séu ókláruð hjá kjararáði. Gissur segir allt óljóst með hvað verður um hin óafgreiddu mál og ætlunin að setja þau undir kjara- og mannauðssýslu ríkisins sé alveg óklárað verklag.