Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja stjórnsýsluúttekt á Ríkisútvarpinu sem taka mun til fjármögnunar, reikningsskila og samkeppnisreksturs stofnunarinnar. Ríkisendurskoðandi segir ýmsar ástæður geta verið fyrir því að ráðist sé í slíka úttekt. Ekki fæst uppgefið hvert tilefni úttektarinnar er, eða staða, en Ríkisendurskoðun kannar almennt í slíkum úttektum meðferð og nýtingu almannafjár og bendir á leiðir til að úrbóta. Útvarpsstjóri telur úttektina tímabæra.
„Ýmsar ástæður eru fyrir því að Ríkisendurskoðun kanni fjárhagsstöðu, hagkvæmni og skilvirkni embætta umfram það sem hefðbundin fjárhagsendurskoðun leiðir í ljós,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi í skriflegu en almennu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/rikisendurskoandi-akveur-a-gera-stjornssluuttekt-a-ruv