Ríkir stúdentar verði skuldlausir

Ásta Guðrún Helgadóttir Pírati skýrði á Alþingi í gær hvers vegna hún var á móti LÍN-frumvarpinu. „Þetta frumvarp er mjög góð ástæða fyrir því að við stóðum upp og sögðum: Nei, þetta er ekki nógu gott. Þarna er verið að slíta ákveðinn jöfnuð, sjá til þess að þeir ríku fái styrk og komi skuldlausir úr námi, sjá til þess að stúdentar í foreldrahúsum geti komið skuldlausir úr námi á meðan þeir sem hafa börn á framfæri borga brúsann.“

Ásta Guðrún sagði: „Þetta mál sem var allsherjar- og menntamálanefnd var þeim vanköntum háð að allir útreikningar sem voru í boði voru bundnir við einhverja galdra. Þarna var verið að blekkja þingheim með því að segja að 85 prósent stúdenta kæmu betur út. Það var fengið út með því að gera ráð fyrir því að einstæð móðir með tvö börn á námslánum tæki sér einungis úr námslánakerfinu sem samsvarar 115.000 á mánuði og mundi þar af leiðandi minnka heildartekjur sínar um 190.000 á mánuði. Það voru forsendurnar sem gefnar voru í frumvarpinu. Að sama skapi var ekkert litið til þess að sumir nemendur þurfa að taka skólagjaldalán, eins og listnemar þurfa að gera. Ég er með dæmi um listnema sem fer í LHÍ þar sem önnin kostar 490.000 og síðan í mastersnám í tónsmíðum þar sem önnin kostar 796.000. Ef hann tæki fullt framfærslulán, sem er mjög eðlilegt, það er það sem nemendur gera núna, og skólagjaldalán væri afborgun hans á mánuði um 30.000. Það mundi tvöfaldast miðað við núverandi kerfi. Er það frábært? Þrátt fyrir að hann fái 65.000?“