Í máli Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, kemur fram að upplýsingakerfi ríkisins sé svo áfátt að ómögulegt er að henda reiður á innkaup einstakra stofnanna. Svo ekki sé talað um heildarinnkaup á vörum og þjónustu.
Þetta kemur fram í fréttaskýringaættinum 30 mínútum sem er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 í kvöld.
Þar munu ásamt Ólafi, koma fram þau Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, og Skúli Magnússon, dómari og formaður kærunefndar útboðsmála.
Hversu mikil brögð eru á að útboð fari ekki fram vekur upp margar spurningar. Ólafur segir fátt hvíla eins mikið á sínum félagsmönnum og einmitt þetta.