Hæstiréttur hefur hafnað umsókn Tryggingastofnunar til að áfrýja dómi Landsréttar í máli Sigríðar Sæland Jónsdóttur gegn stofnuninni. Sigríður er Móðir Ingu Sælands, formann flokks fólksins.
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að Tryggingarstofnun var óheimilt að skerða kjör ellilífeyrisþega án þess að fyrir því hafi verið stoð í lögum. Var ríkið dæmt til að endurgreiða rúma fimm milljarða króna til þeirra ellilífeyrisþega sem urðu fyrir skerðingunni árið 2017.
„Þetta er bara frábær dagur fyrir okkur. Réttlætið var að sigra, það er bara þannig. Maður er náttúrulega bara glaður. Á sama tíma er þetta áfall fyrir ríkið, þetta eru gríðarlegir fjármunir sem þarf að fara að greiða út. Mér finnst það með ólíkindum hvað er búið að gera þessu máli lítil skil miðað við hvað það er umfangsmikið,“ segir Inga Sæland í samtali við Mbl.is