Árlegt tap Íbúðalánasjóðs á næstu árum er áætlað allt að 900 milljónir króna að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins fyrir síðasta ár, en ástæðan fyrir þessum óförum hans er rakin beint til skuldalækkana stjórnvalda á húsnæðislánum.
Að því er fram kemur á fréttavefnum visir.is í dag gerir Íbúðalánasjóður einnig ráð fyrir að á milli 15 og 17 milljarðar verði greiddir inn á lán vegna heimildar sem einstaklingar hafa til að nýta séreignasparnað til niðurgreiðslu húsnæðislána. Þessar uppgreiðslur muni valda því að hreinar vaxtatekjur sjóðsins dragist saman um 300 til 450 milljónir til viðbótar.
Samanlagt muni því vaxtatap sjóðsins vegna skuldaúrræða ríkisstjórnarinnar nema 900 til 1350 milljónum á ári eða sem nemur um helmingi hreinna vaxtatekna Íbúðalánasjóðs.
„Framangreint tjón vegna úrræða stjórnvalda mun að óbreyttu hafa mikil áhrif á grunnafkomu sjóðsins og valda því að sjóðurinn verður hér eftir rekinn með tapi sem á endanum fellur á ríkissjóð,“ segir í skýrslu stjórnar Íbúðalánasjóðs.