\"Lúðvík XIV á að hafa sagt ,,ríkið það er ég\". Nú segir borgarstjórinn í Reykjavík hins vegar ,,ríkið, það er Sigmundur Davíð, og allar stofnanir og nefndir með\".\"
Þetta skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fésbók sína og svarar þar með fésbókarskrifum Dags B. Eggertssonar þess efnis að forsætisráðherra verði að taka mark á undirstofnunum sínum þegar kemur að friðun húsa í borginni.
\"Ég á víst að afgreiða öll mál sem koma upp hjá ríkisstofnunum og fagnefndum í samtali við sjálfan mig, að mati borgarstjórans, og hjálpa um leið borginni að taka af skarið um verndun húss sem er þegar friðað,\" skrifar Sigmundur Davíð og sendir borgarstjóra sneiðina, en sá síðarnefndi hafði á orðum í skrifum sínum að vilji ráðherrans til að friða húsið Casa Christi á lóð MR væri vændræðalegur í ljósi þess að stofnanir sem heyra undir ráðherrann vilji ekki friða það.
Sigmundur Davíð segir aðþað sé beinlínis rangt hjá borgarstjóranum að Minjastofnun hafi heimilað niðurrif hússins sem um ræðir: \"Þvert á móti ítrekaði hún við byggingarnefnd MR, fyrir um viku síðan, að húsið væri friðað.\"
Stóra húsfriðunarmálið vindur því upp á sig - og sér ekki fyrir endann á hnútuköstum ráðherra og borgarstjóra.