Ríkið snuðað um 6 milljarða á borgun?

Ríkið tapaði 4-6 milljörðum króna á sölunni í Borgun miðað við það verðmæti sem hluturinn stendur núna í. Þetta staðhæfa þingmenn stjórnarandstöðunnar sem telja sannað að staðið hafi verið að sölu ríkisbankans Landsbankans á hlutnum í Borgun með mjög óeðlilegum hætti. Föðurbróðir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra var í hópi kaupenda sem högnuðust stórvægilega við kaupin.
Mjög er búið að ganga að Bjarna Benediktssyni að svara almennilega fyrir málið en enn einu sinni skilar hann auðu, sagði Össur Skarphéðinsson í umræðu um söluna á Alþingi í dag. Kristján Möller var fyrirspyrjandi í umræðunni. hann vísaði til þess að nýjasta verðmat á Borgun væri nú 19-26 milljarðar. Hagnaður lykilstjórneda af kaupunum væri 4-6,5 milljarðar króna.
\"Af hverju fæ ég ekki svar?\" spurði Kristján sem vill vita hvar ábyrgðin liggur. Kristján hefur lengi kallað eftir svörum frá Bjarna. Hann spurði hvort Borgun leyndi upplýsingum, hvort Bjarni leyndi upplýsingum, hvort Landsbankinn leyndi upplýsingum. Gerðar hefðu verið rannsóknir vegna minni mála enda hefði virði hlutarins vaxið frá 2,2 milljörðum og jafnvel upp í 8 milljarða síðan ríkið seldi.
Bjarni Benediktsson sagði í síðara svari að hann hefði gert grein fyrir því við Bankasýsluna að allt yrði dregið fram. \"Ég held að menn eigi að fara aðeins varlega í dag að ræða um tiltekið tap sem Landsbankinn hafi orðið fyrir. Ég vil vita hvers vegna þetta var gert svona en ég vil ekki að úr því sé lítið gert að stjórnendur bankans hafa gengist við mistökum,\" sagði fjármálaráðherra.