Ríkið styrki fráveitumál mývetninga

\"Ég tel alveg ljóst að ríkið þarf að bregðast við og sérstaklega varðandi fráveitumálin,\" segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG í NA-kjördæmi, spurð út í viðbrögð vegna harðorðrar ályktunar Veiðifélags Laxár og Krákár.

Eins og Hringbraut hefur fjallað um eru blikur á lofti hvað varðar Mývatn. Í ályktun aðalfundar veiðifélagsins segir að mörg alvarleg teikn séu á lofti í lífríki Mývatns og Laxár og fari félagsmenn þess á leit að æðstu yfirvöld umhverfis-, atvinnu-, og fjármála í landinu beiti sér fyrir því að rannsóknir á svæðinu verði efldar og stuðli að því að gripið verði til þeirra aðgerða sem að gagni mega koma.

Lífríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álagi undanfarna áratugi og svæðið er á rauðum lista Umhverfisstofnunar fjórða árið í röð. Kúluskíturinn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heiminum, er horfinn. \"Botni Mývatns má líkja við uppblásinn eyðisand,\" segir í ályktun veiðifélagsins. Þá er rætt um hrun bleikju og hornsíla í vatninu. \"Bakteríugróður, sem Mývetningar kalla leirlos, fer vaxandi og hefur síðustu tvö sumur verið með fádæmum og langt yfir þeim heilsuverndarmörkum sem Alþjóða heilbrigðismálastofnunin miðar við í vötnum þar sem útivist er stunduð. Leirlos í svo miklu magni hefur mjög neikvæð áhrif á lífríki Laxár allt til sjávar, sem og upplifun veiðimanna á svæðinu, segir í ályktun veiðifélagsins.

Í því samhengi hefur verið nefnt að ófullnægjandi fráveitumál hafi neikvæð áhrif en einnig hefur komið fram að útbætur fráveitumála myndu ríða sveitarfélaginu Skútustaðahreppi að fullu kostnaðarlega. Um þetta segir þingmaður VG í NA-kjördæmi, Bjarkey Olsen: \"Ég tel alveg ljóst að ríkið þarf að bregðast við og sérstaklega varðandi fráveitumálin enda sveitarfélagið í sérstakri stöðu hvað úrlausn þeirra mála varðar, þar er um að ræða afar dýra aðgerð.\"