Ný reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands felur í sér algjöran niðurskurð á endurgreiðslum vegna þriðju og fjórðu meðferðar fyrir tæknifrjóvganir og umtalsverða lækkun á endurgreiðslum vegna fyrstu og annarrar meðferðar. Í leiðinni hækka endurgreiðslur til fólks með sjúkdóma sem ógna frjósemi.
Nýja reglugerðin, sem tekur líkt og sú fyrri til glasafrjóvgana (IVF) og smásjárfrjóvgana (ICSI), var samþykkt af Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra þann 20. desember síðastliðinn og gekk í gildi þann 1. janúar.
Livio Reykjavík, fyrirtæki í meðferðum á ófrjósemi, harmar það í tilkynningu að hið opinbera skyldi ekki hafa lengri fyrirvara á þessum breytingum og þau óþægindi sem þessi breyting kunni að valda sjúklingum. Samkvæmt Livio eru helstu breytingarnar sem eru fólgnar í þessari nýju reglugerð eftirfarandi:
- Greiðsluþátttaka er ekki háð því hvort parið eigi saman barn eða ekki.
- Í fyrstu meðferð er reiðsluþátttaka 5% (24.000 kr.) og mun hluti sjúklings verða 456.000 kr. með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands (SÍ).
- Í annarri meðferð er greiðsluþátttaka 30% (lækkar úr u.þ.b. 225.000 kr. í 144.000 kr.) og mun hún nú kosta 336.000 kr. með greiðsluþátttöku SÍ.
- Greiðsluþátttaka í meðferð þrjú og fjögur fellur niður og greiðast þær því fullu verði, 448.000 kr. hvor.
- Konur og karlar með sjúkdóma sem ógna frjósemi fá 65% greiðsluþátttöku í meðferðum sem miða að því að geyma egg/sæði/fósturvísa og geymslu þeirra.
Breytt reglugerð
Samkvæmt fyrri reglugerð nr. 917/2011, ásamt síðari breytingum, endurgreiddu sjúkratryggingar til para sem áttu ekki barn saman 40% af fyrstu meðferð og 65% af annarri til fjórðu meðferð. Fyrir pör sem áttu eitt barn saman endurgreiddu sjúkratryggingar 15% af fyrstu til fjórðu meðferðar þeirra.
Í nýju reglugerðinni nr. 1239/2018 hefur ákvæði um þriðju og fjórðu meðferð verið upprætt og endurgreiðslur lækkaðar vegna fyrstu og annarrar meðferðar. Jafnframt hefur nýjum tölulið verið bætt við sem kveður sérstaklega á um greiðsluþátttöku til fólks með sjúkdóma sem ógna frjósemi. Endurgreiðslur sjúkratrygginga verða framvegis samkvæmt 3. grein reglugerðarinnar:
- 5% af fyrsta skipti í glasafrjóvgun (IVF) og smásjárfrjóvgun (ICSI).
- 30% af öðru skipti í glasafrjóvgun (IVF) og smásjárfrjóvgun (ICSI).
- 65% af eftirtöldu:
- vegna eggheimtu og frystingu eggfruma þegar um er að ræða konur með yfirvofandi ófrjósemisvandamál vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings,
- fyrir að þíða egg og frjóvga, sbr. tl. a,
- vegna ástungu á eista og frystingu sáðfruma þegar um er að ræða karlmenn með yfirvofandi ófrjósemisvandamál vegna fyrirsjáanlegrar lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings,
- vegna geymslugjalds á frystum fósturvísum/eggfrumum/sáðfrumum, í þeim tilfellum sem tilgreind eru í tölul. a og c, þó að hámarki í 10 ár.