Ekkert miðar í samkomulagsátt í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins og eru hjúkrunarfræðingar farnir að búa sig undir annað tveggj; margra vikna verkfall eða lagasetningu ríkisvaldsins á vinnustöðvun þeirra.
1600 hjúkrunarfræðingar starfa á Landspítalanum og nær verkfallið til 1100 þeirra, en 500 hjúkrunarfræðingar eru enn við störf sakir undanþágna í bráðatilvikum.Félag þeirra sleit samningaviðræðum fyrir viðsemjendur sína fyrir helgi eftir að fyrir það hafði verð lagt álíka tilboð um krónutöluhækkun og almenni markaðurinn hefur verið að semja um á síðustu dögum. Að sögn Ólafs G. Skúlasonar hefði samningur af því tagi þýtt að byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga eftir fimm ára háskólanám hefði farið úr 304 þúsundum króna í 359 þúsund krónur á þriggja ára tímabili, en það merki að ríkið meti hvert ár í námi á tæplega 12 þúsund krónur umfram verkamannalaun.
Um þetta snúist deilan; að meta menntun til launa - og þessar tölur sýni betur en annað um hvað þurfi að semja svo áfram verði hjúkrunarfræðingastétt til staðar í landinu.