Regluleg laun voru að meðaltali 1,7% hærri á öðrum ársfjórðungi 2015 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var 5,7% að meðaltali, hækkunin var 4,8% á almennum vinnumarkaði og 7,8% hjá opinberum starfsmönnum.
Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar í morgun þar sem jafnframt kemur fram að laun ríkisstarfsmanna hækkuðu um 5,1% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 11,0%.
Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstétt á bilinu 0,8% til 3,3%. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki eða um 6,8% en minnst hjá iðnaðarmönnum eða um 2,7%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,3%, skrifstofufólks um 5,4%, verkafólks um 4,9%, sérfræðinga um 4,4% og stjórnenda um 3,3%.
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í atvinnugreinunum samgöngum og flutningum annars vegar og verslun og viðgerðarþjónustu hins vegar. Í þessum atvinnugreinum hækkuðu regluleg laun um 2,7% frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkuðu laun um 1,7% í byggingarstarfsemi, 1,3% í iðnaði og 0,8% í fjármálaþjónustu. Árshækkun frá öðrum ársfjórðungi 2014 var mest í samgöngum eða um 7,0% en minnst í fjármálaþjónustu eða um 3,7%.