Ríkið leggur til 2300 leiguíbúðir

Aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum á almennum markaði liggur nú fyrir og felst annaðtveggja í tilfæringum á tekjuskattskerfinu og átaki í húnæðismálum. Efni yfirlýsingar stjórnvalda hefur þegar verið kynnt verkalýðsforystunni.


Stór þáttur í yfirlýsingunni varðar húsnæðismál. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir að byggðar verði 2300 nýjar leiguíbúðir með samkomulagi við sveitarfélög, en áhersla er þar lögð á litlar og meðalstórar leiguíbúðir sem eru hagkvæmar í byggingu og rekstri. Áður hafði verið rætt um 1300 íbúðir, en viðræður leiddu til verulegrar fjölgunar þeirra.


Leiguíbúðirnar eiga að nýtast þeim sem lægst hafa launin. Sigurður Bessason formaður Eflingar, sem á aðild að samningum Flóans, VR, LÍV, og Stéttvest sem væntanlega veriða undirritaðir í dag segist enn vonast eftir frekara átaki í húsnæðismálum en þau brenni mjög á fólki. Famkomnar tillögur um 2300 íbúða uppbyggingu um land allt muni auðvitað hjálpa almennt til í samfélaginu, þótt betur megi gera svo dugað geti til einhverrar frambúðar.