Ríkið heldur fé sem átti að fara annað

Runólfur Ágústsson, fyrrum formaður stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs, tekur undir með Þorsteini Víglundssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins, að tryggingagjald á fyrirtæki sé allt of hátt í því árferði mikillar atvinnu og fárra á atvinnuleysisskrá eins og nú mælist.

Þorsteinn ritaði leiðara um málið í fréttabréf samtakanna og heldur fram að ríkið haldi eft­ir tugum millj­arða króna af skatt­fé sem ætlað sé að fjár­magna at­vinnu­leysi sem að mestu er horfið. Mogginn hefur bent á að at­vinnu­leysi hafi verið um þrjú pró­sent síðustu tólf mánuði en trygg­inga­gjaldið svipað og þegar at­vinnu­leysi var átta til níu pró­sent á ár­un­um 2009 til 2010.

Undir þetta tekur Runólfur en hann var stjórnarformaður Atvinnuleysistryggingasjóðs á síðasta kjörtímabili. Þá var tryggingagjald stórhækkað til að mæta útgjöldum sjóðsins vegna fjöldaatvinnuleysis eftir hrun. Útgjöld hans námu þá hátt í 30 milljörðum á ári.

„Þetta var gert í samráði við aðila vinnumarkaðarins og sérstakt samkomulag gert um ráðstöfun þessa fjármuna m.a. með því að kosta nám atvinnulausra í frumgreinadeildum, framhaldsskólum og háskólum landsins. Þegar aðgerðir virkuðu og atvinnuleysið lækkaði stóð þáverandi ríkisstjórn ekki við gefin fyrirheit um að lækka gjaldið samsvararandi. Þetta var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ekki til sóma,“ skrifar Runólfur.

En ábyrgð okkar ríkisstjórnar nú er ekki minni að mati Runólfs.

„Núverandi stjórn hefur heldur ekki staðið við þessi fyrirheit. Slíkt er slæmt, bæði vegna þess með því grafa stjórvöld undan því trausti sem ríkja þarf gagnvart þeim og orðum þeirra en ekki síður vegna þess að tryggingagjaldið er hlutfall af greiddum launum fyrirtækja og bitnar því helst á fyrirtækjum þar sem laun eru hátt hlutfall af rekstrarkostnaði, eins og smáfyrirtækjum og nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta er ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ekki til sóma,“ skrifar Runólfur á eigin fésbókarsíðu.