Ríkið greiðir í kringum milljarð króna í málskostnað á ári, ef horft er til síðustu ára eftir efnahagshrunið, en á upplýsingaveitunnu Spyr.is var nýlega spurt hver kostnaður ríkissjóðs af málarekstri væri að jafnaði.
Á síðunni segir að í fréttum fjölmiðla komi oft fram að málskostnaður falli á ríkið, sem iðulega sé þá liður í dómsniðurstöðu eða sýknu þess sem ákærður var. Lesandi velti því fyrir sér hversu mikið ríkið væri að greiða í málskostnað vegna dómsmála á ári. Í svari Fjársýslu ríkisins, kemur fram að gjöld umfram tekjur, voru 944,5 milljónir árið 2014.
Í svarinu segir að nánar megi fylgjast með þessum kostnaðarlið á heimasíðunni ríkisreikningur.is en þar eru upplýsingar um þessi útgjöld ríkissjóðs frá 2004. Þar sést að kostnaður ríkisins af málarelstri rokkar nokkuð á milli ára, en er að jafnaði í kringum milljarð króna á ári.
Spyr.is er samstarfsaðili Hringbrautar en þar getur almenningur fengið svör stjórnenda, ráðamanna og fræðimanna við öllum þeim spurningum sem þeir hafa áhuga á að fá svör við.