Ríkið getur lengt uppsagnarfrestinn

Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður Bandalags háskólamanna segir ríkisvaldið hafa öll tromp á hendi sér í þeirri stöðu sem nú er uppi í kjaradeilu þess við félagsmenn BHM.

Hún metur það svo í samtali við Fréttablaðið í dag að ríkið sé búið að smíða rammann fyrir gerðardóminn með efnahagslegum forsendum og þar af leiðandi falli frekari samningaviðræður í Karphúsinu um sjálft sig, en samkvæmt verkfallslögunum sem sett voru síðastliðinn laugardag ákveður gerðardómur kjör þeira sem lögin náðu til ef ekki hefur samist fyrir 1. júlí.

Lögin nái í raun til allra aðgerða þessara félaga til að ná fram betri kjörum - og þá sé heldur ekki hægt að lesa lögin öðruvísi en svo að fólk sem segi upp störfum sínum af óánægju með framvindu mála geti ekki hætt á tilskyldum tíma því ríkið hafi heimild til að lengja uppsagnarfrestinn við aðstæður eins og þær sem við blasa. Þannig hafi ríkisvaldið öll tromp á hendi sér sem fyrr greinir.

Þórunn metur það svo að ekkert tilefni sé til fundahalda með samninganefnd ríkisins. Hún sýni engin merki þess að vilja koma til móts við kröfur BHM.