Ríkið finni störf fyrir bæjarbúa

 

Bæjarráð Bolungarvíkur hefur ályktað vegna þeirrar ákvörðunar Landsbankans að leggja þrjú útibú bankans fyrir vestan niður. Um ræðir Bolungarvík, Þingeyri og Suðureyri. Munu ellefu manns missa vinnuna í þessari viku þegar þeim verður lokað.

„Í ljósi þess að ríkið er eigandi Landsbankans og starfsemi sýslumanns er á vegum ríkisins gerir bæjarráð Bolungarvíkur kröfu um að starfsemi á vegum ríkisins verði fundinn staður í Bolungarvík,“ segir í bókun ráðsins. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Sameining sýslumannsembætta hefur einnig kostað störf fyrir vestan. Fréttablaðið ræðir við íbúa í Bolungarvík, fyrrum bankastarfsmann, sem segir að uppsagnir og lokanir bankaútibúanna muni  bitna mest á eldra fólki sem eigi erfitt með að sækja ýmsa nauðsynlega þjónustu.

Bæjarbúar ætla að mótmæla lokun bankans á fimmtudag á táknrænan máta með krönsum og blómum rétt eins og um jarðarför væri að ræða. Þeir hafa margir lýst óánægju sinni með lokun útibúsins og sumir hætt viðskiptum við Landsbankann eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu.

Á sama tíma og Landsbankinn segir upp fólki og hagræðir stefnir í að ríkisstjórnin nýti sér heimild í fjárlögum til að selja 30% eignarhluta ríkisins í bankanum í vetur eins og Hringbraut sagði frá í gær.