Íslenska ríkið fer ekki fram á sýknu sem varnaraðili í skaðabótamáli sem Magnús Ver Magnússon, fyrrum sterkasti maður heims, hefur höfðað vegna ólöglegrar meingerðar.
Magnús vill 10 milljónir króna í miskabætur frá ríkinu eftir að Magnús var af lögreglu grunaður um stórfelldan innflutning á fíkniefnum til landsins. Rannsókninni var hætt eftir 3ja ára rannsókn.
Magnús Ver telur að nafnið hans sé vörumerki sem hafi áhrif á afkomu hans við rekstur æfingastöðvar og til einkajálfunar og augljóslega hafi hann orðið fyrir tjóni vegna rannsóknarinnar.
Ríkið fer fram á lækkun kröfu Magnúsar Vers en viðurkennir bótarétt þar sem rannsókn hafi verið hætt.