Samþykkt var á aðalfundi Landsvirkjunar í dag að greiða eigandanum, íslenska ríkinu, hálfan annan milljarð króna í arðgreiðslur í ljósi afkomu síðasta árs. Hagnaður fyrirtækisins nam röskum 10 milljörðum króna á síðasta ári og var arðsemi eigin fjár 4,7% sem er það hæsta um árabil. Eiginfjárstaða fyrirtækisins var 39,9% og hefur sömuleiðis ekki verið hærra um langt árabil.
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Lögmannafélags Íslands, Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur.