Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að leiga ríkisins á Fosshóteli við Rauðarárstíg, sem á að nota sem sóttkví fyrir einstaklinga sem eru mögulega smitaðir af kórónaveirunni, kosti ríkissjóð á annað hundrað milljónir.
Þetta sagði Katrín í viðtali í Víglínunni í dag. Hún sagði að hótelið yrði notað fyrir þá einstaklinga sem væru í sóttkví en ættu ekki í önnur hús að vernda, til dæmis ferðamenn en einnig þá Íslendinga sem eru í þeirri stöðu.
Á hótelinu eru 85 herbergi og aðgengi fyrir hjólastól. Samninginn gerði ríkið við hótelkeðjuna Íslandshótel sem á hótelið. Allir gestir þess voru færðir á önnur hótel í eigu keðjunnar.
Aðspurður hvort þurfi að koma upp tjöldum eða breyta einhverju innanhúss svarar Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, í samtali við Fréttablaðið í gær:
„Við erum ekki að breyta neinu útliti hótelsins eða innanstokksmunum. Þjónustan verður ekki hefðbundin fyrir einstaklinga sem þar munu gista,“ Hann segir að starfsmenn hótelsins munu vinna í samstarfi við heilbrigðisstarfsmenn og munu sjá til þess að einstaklingar fái herbergisþjónustu svo einstaklingar séu ekki að ráfa um bygginguna. Þetta sé gert til að koma í veg fyrir mögulega dreifingu á veirunni.