Ríkið er ekki að gefa neitt

Þjóðbraut í kvöld á milli kl. 21 og 22:

Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra svarar fyrir sameiningaráform og segir ríkið ekki vera að gefa neitt af eigum sínum ef af sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans verður.  Bergur Ebbi skrifaði bókina Stofuhiti og kemur í kaffi.  Göngum saman fjáröflunin verður farin í hinsta sinn og börn alkóhólista þurfa sérstaka hjálp. Þetta er efni þáttarins.

Það er talað um leynimakk menntamálaráherra og að hættulegur afleikur sé í uppsiglingu með mögulegri sameiningu Tækniskólans og Menntaskólans í Ármúla. Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra segir ekki útséð með að sameining verði en það sé þó stefnan í menntamálum þar sem nemendum fækkar vegna styttingar stúdentsprófs. Hann segir af og frá að búið sé að ákveða sameininguna og ríkið sé ekki að leggja inn eigur sínar í einkarekinn skóla sem Tækniskólinn sé.

 

Alkóhólismi er um allt samfélag okkar, ungir, gamlir, ríkir og fátækir eru þar á meðal – En hvað með börn alkóhólista? Ása Margrét Sigurjónsdóttir vinnur með börnum bæði þeirra sem hafa farið í meðferð en líka sem eiga foreldra enn í neyslu. Meira en eitt þúsund börn frá 8 til 18 ára hafa leitað til sálfræðiþjónustu SÁÁ frá 2008.

Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum samanog upphafsmaður göngunnar mætir á Þjóðbraut ásamt Margréti Baldursdóttur. Gangan sem er auk þess meiriháttar fjáröflum hefur verið farin er árlega en nú í síðasta sinn. Félagið hefur styrkt rannsóknir á brjóstakrabbameini um tugir milljóna en Gunnhildur greindist fyrst með brjóstakrabba fyrir nítján árum og nýlega í fjórða sinn. 

Bergur Ebbi Benediktsson skáld, pistlahöfundur og uppistandari er gestur í lok Þjóðbrautar í kvöld. Hann tekst á við aðkallandi spurningar í nýrri bók sinni Stofuhiti.