Þeir Guðmundur Gunnarsson og Vilhelm Wessman eiga líflegar samræður um lífskjör og lífsgæði aldraðra við Helga Pétursson í þættinum Okkar fólk sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20:30 í kvöld.
Fram kemur meðal annars að skerðingar á eftirlaunum frá Tryggingastofnun eru orðnar svo miklar að greiðslum sé í raun velt yfir á eftirlaunasjóðakerfið sem er eign sjóðsfélaga en ekki ríkisins. Skýr krafa eftirlaunafólks sé að það fái 300 þúsund króna lágmarkseftirlaun frá Tryggingastofnun, enda hafi fólk greitt sína skatta þangað áratugum saman auk söfnunar í eftirlaunasjóði sem séu eign launamanna.
Okkar fólk er sem fyrr greinir á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld.