Mannréttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að ríkið hafi brotið á mannréttindum Bjarna Ármannssonar, fyrrverandi forstjóra Glitnis. Dómstóllinn telur að honum hafi verið refsað tvisvar fyrir sama brot. RÚV.is greinir frá.
Árið 2012 var Bjarna gert að greiða endurákvarðaða skatta vegna vantalinna fjármagnstekna á árunum 2007-2009, auk 25 prósenta skattaálags. Síðar var hann ákærður og dæmdur fyrir skattalagabrot, en var þá þegar búinn að greiða skuld sína við skattinn.
Bjarni skaut málinu til MDE þar sem hann taldi að sér hefði verið refsað tvisvar fyrir sama brot og féllst dómstóllinn á að svo hafi verið. Niðurstaðan þýðir að ríkinu er gert að greiða Bjarna fimm þúsund evrur í skaðabætur, um 680 þúsund krónur, auk vaxta.