Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir, segir á Þjóðbraut í kvöld að sér finnist skrýtið þegar talað sé um að hún sé að bregðast of seint við í sjómannaverkfallinu. „Hafa menn ekki verið að hlusta?“, spyr hún í viðtali hjá Sölva og meinar að hún hafi fyrir löngu sagt að deilendurnir tveir ættu að leysa sín kjaramál sjálfir. Ríkið myndi eingöngu koma inn með einhverjar almennar lausnir en ekki sértækar.
Hún segir að það verði ekki komið til ríkisvaldsins með kröfur upp á nokkur hundruð milljónir og á þar við skattaafslátt sem áður var nefndur sjómannaafsláttur og síðar fæðispeningar.
Þjóðbraut er klukkutíma þáttur á fimmtudögum. Hefst klukkan 21 og svo endursýndur - líka á flakkaranum. Umsjón: Linda Blöndal og Sölvi Tryggvason.