Samkeppniseftirlitið telur koma til greina að ríkið ákveði bensínverð hverju sinni. Sú leið verði farin til að koma í veg fyrir meinta siðlausa álagningu olíufélaganna. Úttekt Samkeppniseftirlitsins sýnir að notendur greiði 4,5 milljörðum meira árlega fyrir bensín en eðlilegt getur talist.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Fram kemur að verðstýring á mörkuðum sé neyðarúrræði sem e.t.v. þurfi þó að grípa til ef olíufélögin láta sér ekki segjast.
Forstjóra Olís líst illa á þessar hugmyndir eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu