Ríki íslam

Ríkisoddvitar Atlantshafsbandalagsins (NATO) munu samþykkja að NATO láti meira að sér kveða í stríðinu gegn ríki íslam eða DAESH. Þannig mun NATO ganga til liðs við Bandaríkin og bandamenn þeirra í stríðinu gegn DAESH.

Aðalframkvæmdastjóri NATO hinn norski Jens Stoltenberg segir þetta vera pólitísk skilaboð um staðfestu allra aðildarríkja NATO og einbeittan vilja þeirra allra að leggja sitt að mörkum í þessu stríði.

Enn er óljóst hvort þetta merkir að öll NATO ríkin taki hér eftir þátt í stríðunu gegn DAESH  eða hvort einstöku NATO ákveði sjálf umfang þátttöku í stríðinu.

Þetta skýrist væntanlega þegar ríkisoddvitarnir senda frá sér sameiginlega lokayfirlýsingu sína seinna í dag eða á morgu.

Fréttaskýrendur og sérfæðingar telja að fyrirhuguð ákvörðun NATO sé pólitísk því NATO ríkin tuttugu og átta hafa þegar lagt sitt að mörkum í þessu stríði.

rtá