Nú er svo komið í fyrsta skipti í sögunni að ríkasta eina prósentið á heiminum á meiri auðævi en öll hin 99% jarðarbúa.
Þetta má lesa í skýrslu mannréttindasamtakanna Oxfam en úttekt samtakanna þykir vönduð og byggir m.a. á tölum frá Forbes og Credit Suisse.
Þar segir einnig að 62 ríkustu manneskjur heims eigi jafn mikinn auð og fátækari helmingur alls mannkyns til samans.
Skýrsla um þessa öfugþróun verður kynnt á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss eftir tvo daga. Ríki heims eru hvött til að bregðast hart við og snúa þróuninni við.
Það er ekki síst ófyrirleitin hagsmunagæsla iðnaðar- og viðskiptalífsins sem gagnrýnd er í skýrslunni og hvernig ráðandi stjórnvöld dragi taum sérhagsmuna öflugra valdakjarna. Sérstaklega er rætt um skattaskjól og skattaundanskot stórfyrirtækja sem bitni harkalega á velferðarsjóðum og almenningi.
Einnig kemur fram að eignir fátækari helmingsins hafi stórrýrnað eða um 130 trilljónir (evrópskar billjónir) frá 2010, eða um 41%. Á tímabilinu hefur íbúum þó fjölgað um 400 milljónir.
Á sama tíma hafa sjóðir 62 ríkustu manneskja heims vaxið um 65 trilljónir króna.
Oxfam segir að réttmæt innheimta skatta af auðkýfingum og risafyrirtækjum sé mikilvæg forsenda þess að ójöfnuðinum verði snúið við og getur hver og einn og horft til þeirrar þróunar og áherslu sem rekin er á Íslandi í þessum efnum og varðar t.d. stærstu álfyrirtækin sem hér starfa og velt fyrir sér hvort verk sé að vinna.
Einnig kallar Oxfam eftir reglum um lágmarkslaun sem dugi fyrir framfærslu. Þá sé mikilvægt að uppræta kynbundinn launamun.