Sá orðhvassi þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er segir í færslu dagsins á vefsvæði sínu að stéttskipting á Íslandi fari mjög vaxandi og megi þar í reynd tala um sprengingu.
Hann vitnar í tölur sem svissneski CREDIT SUISSE bankinn birtir og sýna misjafnan auð þjóða: \"Þar er Ísland í næstefsta sæti á eftir Sviss,\" bendir Jónas á og bætir því við að nettó auður Íslendinga á hvern mann sé sá næstmesti í Evrópu. \"En ójöfnuður er meiri hér en víðast annars staðar og fer ört vaxandi,\" heldur Jónas áfram og dregur línu í kökuna: \"Þriðjungur Íslendingar á minna en ekki neitt, hefur eignastöðu í mínus. Hálf þjóðin á minna en eina milljón í eignum. Ríkasta 1% þjóðarinnar á 25% allra eigna og auður þeirra hefur vaxið um 40% síðasta áratug.\"
Jónas segir þróunina augljósa: \"Þessar tölur segja okkur frá sprengingu í stéttskiptingu. Þjóðarauði okkar er stungið undan,\" og hann metur það svo að ójöfnuðurinn haldi áfram á meðan ríkjandi stjórnvöld fara höndum um lykla ráðuneytanna: \"Breytist ekki fyrr en bófaflokkunum verður úthýst úr alþingi og ríkisstjórn,\" eins og hann kýs að orða það .