Rigningarlegt í kortunum

Vætutíð er fram undan á Íslandi, einkum um sunnan- og vestanvert landið og verður ekki annað sér úr kortum næstu daga en það rigni fremur lárétt framan í íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Aðrir landsmenn, svo sem á Eyjafjarðarsvæðinu þurfa hins vegar enn að bíða eftir þvottakonunni að ofan en þar hlýtt og þurrt fram á helgina.


Þessi veðurumskipti, frá viðvarandi kulda yfir í margra daga hlýindi eru Vegagerðinni mikið fagnaðarefni. Aðalleiðir eru nú greiðfærar að heita má um allt land en þoka er á fjallvegum á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum. Vegir sem ekki eru í vetrarþjónustu eru sumir hverjir orðnir færir. Búið er að opna veginn yfir Öxi en þar er hálka. Vegir sem enn eru lokaðir eða ófærir eru t.d. Nesjavallaleið og eins bæði Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. 


Ökumenn eru beðnir um að hafa þungatakmarkanir í huga á tilgreindum stöðum sem hægt er að nálgast á vegagerdin.is.