Svo gæti farið að sjóðir Knattspyrnusambands Íslands stækki all verulega komist íslenska karlalandsliðið i knattspyrnu í lokakeppni Evrópumeistaramótsins í Frakklandi á næsta ári eins og allt útlit er fyrir.
Liðið þarf að næla sér í eitt stig í síðustu þremur leikjunum gegn Kasakstan heima, Tyrklandi úti og Lettlandi heima til að tryggja sér þátttökurétt á fyrsta stórmóti liðsins í vinsælustu íþróttagrein í heimi, en næsti leikur er gegn fyrstnefnda liðinu á Laugardalsvelli annaðkvöld. Íslendingar unnu fyrri leikinn úti 0:3.
Morgunblaðið greinir frá því í dag að þær upplýsingar hafi fengist hjá Knattspyrnusambandi Evrópu (UEFA) að ákvörðun um greiðslur til þátttökuþjóðanna á EM 2016 verði tekin um áramót. Væntanlega verða þær í einhverju samræmi við greiðslur til liðanna á síðustu mótum, en alls voru greiddar 196 milljónir evra til 16 liða á mótinu 2012, 12 milljónum meira en á mótinu fjórum árum áður.
Blaðið segir að karlalandslið sem komust í keppnina síðast hafi fengið átta milljónir evra fyrir afrekið að komast á mótið, eða 1.160 milljónir króna. Leikið var í fjórum fjögurra liða riðlum í keppninni 2012. Fyrir jafntefli í riðlakeppni var greidd hálf milljón evra, eða um 70 milljónir króna og tvöfalt meira fyrir siguleik.
Að öllu samanlögðu er ljóst að næsta stig í undankeppninni skiptir verulegu máli fyrir KSÍ.